Terms of service

Almennt

Seljandinn, inguglingur.is, tekur við pöntun þegar staðfesting um greiðslu hefur borist. Þegar staðfesting á pöntun og greiðslu hefur borist, sendir seljandinn kaupanda staðfestingu á netfang kaupanda og er þar með kominn samningur á milli kaupanda og seljanda, þ.e. inguglingur.is

Vörurnar

Upplýsingar um vörur eru settar fram eftir bestu vitund seljanda hverju sinni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um bilanir, birtingar og/eða innsláttarvillur á myndum og texta. Sé vara uppseld kemur það fram á síðunni eða vara er tekin úr birtingu þangað til annað kemur í ljós. Ef inguglingur.is selur fyrir mistök vöru sem er ekki til á lager, þá er haft samband við kaupanda, honum boðin endurgreiðsla, að fella niður pöntun eða breyta pöntuninni.