Þessi sápa er tilvalin í sturtuna og er án SLS- og parabens.
Shea butter inniheldur F-vítamín sem bætir teygjanleika húðarinnar, kemur í veg fyrir flögnun og þurrk og róar húðina.
Sápur úr jurtaolíu hafa marga gagnlega eiginleika fyrir húðina. Náttúrulega fitan verndar húðina og mýkir. Hver sápa hefur sérstaka eiginleika sem tengist ilmkjarnaolíum og öðrum náttúrulegum innihaldsefnum. Þær eru handgerðar með hefðbundinni aðferð við kalda pressun.
Þessar ólífuolíusápur koma beint frá framleiðendum á Spáni og eru framleiddar með einni bestu ólífuolíu í heimi.