Ilmkúlurnar eru úr óvöxuðu hrauni og þú setur nokkra dropa af ilmkjarnaolíu á steininn og leyfir olíunni að síast inn.
Þú getur hengt kúluna upp eða lagt hana í litla skál, hengt hana á spegilinn í bílnum eða hengt hana um hálsinn. Þú bætir síðan á eftir þörfum.
Keðjan er 50 cm löng úr brass. Ef þú ætlar að nota kúluna sem hálsmen geturðu keypt keðju úr stáli, 50cm eða 80cm. (sjá í flokknum "keðjur")
Það er gott að setja nokkra dropa af lavender olíu á kúlu sem hægt er að setja á lítinn disk og hafa á náttborðinu þegar farið er að sofa.



